Fyrirtækjareikningar Hopp leyfa öllum að ferðast einfaldlega. Það er auðvelt að skrá fyrirtæki, bjóða samstarfsfólki og stjórna reikningnum. Hægt er að setja takmarkanir og fá sjálfkrafa send yfirlit og reikninga.

  • 01

    Einfalt í notkun

    Það er einfalt að stofna reikning og byrja að nota hann. Stjórnendur gefa starfsmönnum aðgang og stýra aðgengi.

  • 02

    Grænar ferðir

    Hopp er græn samgöngulausn sem dregur úr kolefnisspori vegna ferða á vinnutíma.

  • 03

    Ánægðir starfsmenn

    Einfaldar ferðir til og frá vinnu, á fundi og fyrir önnur erindi með því að fá aðgengi að fjölmörgum Hopp rafskútum, deilibílum og leigubílum.

Ferðamátar

Allir ferðamátar virka með fyrirtækjareikningum. Hopp býður uppá* rafskútur, deilibíla og leigubílaþjónustu. Hægt er að stjórna hvaða ferðamátar eru í boði í gegnum appið.
*byggt á staðsetningu

Greiðslur og kvittanir

Greiðslukort reikningsins er rukkað fyrir hverja ferð og sameinuð kvittun er sent þann 26. hvers mánaðar. Staðfest fyrirtæki geta sótt um að fá að vera í mánaðarlegum greiðslum. Hafðu samband við þjónustuverið fyrir frekari upplýsingar.

Þjónustuver

Stjórnendur og starfsmenn geta haft samband við þjónustuverið ef upp kemur eitthvað vandamál. Hægt er að nota netspjallið í appinu eða senda tölvupóst á [email protected].